Persónuverndarstefna Yoga Húsið

1. Inngangur

Bókunarkerfið Yoga Húsið er í eigu félagsins Margir stafrænir möguleikar ehf., kt. 440325-0840, til heimilis að Fögruhlíð 3, 221 Hafnarfirði („MSM“).

Við leggjum áherslu á að vernda persónuupplýsingar einstaklinga og virða réttindi þeirra. Í persónuverndarstefnu þessari eru veittar upplýsingar um persónuupplýsingar sem félagið vinnur sem ábyrgðaraðili að vinnslu persónuupplýsinga, m.a. í hvaða tilgangi það er gert og hvernig gætt er að öryggi þeirra.

Öll vinnsla persónuupplýsinga fer fram í samræmi við gildandi lög og reglur, þar á meðal reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679 frá 27. apríl 2016 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga („GDPR“) sem innleidd var með lögum um vernd persónuupplýsinga og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 hér á landi.

2. Hvaða persónuupplýsingar vinnum við með?

a) Notendur Yoga Húsið.

Í flestum tilfellum fáum við persónuupplýsingar beint frá þér þegar þú hefur bókað tíma og skráð upplýsingar um nafn, kennitölu, heimilisfang og netfang.

b) Viðskiptavinir og fulltrúar viðskiptavina Yoga Húsið.

Við fáum persónuupplýsingar þegar þú hefur verið skráður sem viðskiptavinur eða fulltrúi viðskiptavinar við skráningu fyrirtækis eða þjónustu hjá Yoga Húsið og gefið upp nafn, kennitölu, heimilisfang og netfang.

c) Fyrirspurnir og önnur rafræn samskipti

Í einhverjum tilfellum fáum við samskiptaupplýsingar frá þér þegar þú sendir inn fyrirspurnir eða átt í öðrum rafrænum samskiptum við fyrirtækið.

3. Tilgangur vinnslu

Við vinnum með persónuupplýsingar í eftirfarandi tilgangi:

  • Til að skrá bókanir notenda á þjónustu.
  • Til að miðla bókunum notenda til þjónustuaðila.
  • Til að afgreiða greiðslur í gegnum örugg greiðslufyrirtæki.

4. Vafrakökur

Við notum vafrakökur á vef Yoga Húsið sem eru nauðsynlegar fyrir virkni vefsins. Vafrakökur eru litlar textaskrár sem oft eru vistaðar á tölvunni þinni eða í öðrum snjalltækjum þegar þú heimsækir vefsíður. Með samþykki þínu er vafrakökum einnig beitt við vefgreiningu, þ.e. til að safna og greina upplýsingar um notkun og virkni vefsíðunnar.

5. Með hverjum deilum við persónuupplýsingum?

Við deilum persónuupplýsingum aðeins með:

  • þeim þjónustuaðilum sem notendur bóka tíma hjá.
  • öruggum greiðslufyrirtækjum, til að afgreiða greiðslur.
  • opinberum aðilum, ef lagaskylda krefur.

Þegar við nýtum utanaðkomandi sérfræðiráðgjöf, t.d. aðstoð tæknimanna, bókara eða endurskoðenda, kann að vera að viðkomandi sérfræðiráðgjöf krefjist þess að unnið sé með persónuupplýsingar. Slík sérfræðiráðgjöf fer þá fram á grundvelli skriflegs samnings eða samkomulags, þar sem kveðið er á um vernd persónuupplýsinga.

6. Réttur þinn samkvæmt persónuverndarlöggjöfinni

Samkvæmt lögum um vernd persónuupplýsinga og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 átt þú rétt á því að fá að vita hvaða persónuupplýsingar við vinnum um þig og rétt á að fá aðgang að þeim upplýsingum. Einnig áttu rétt á því að andmæla vinnslu eða krefjast takmörkunar á vinnslu gagna. Við tilteknar aðstæður áttu rétt á því að krefjast leiðréttingar eða eyðingar gagna. Þá áttu rétt á því að andmæla notkun netfangs þíns við beina markaðssetningu samkvæmt lögum um fjarskipti nr. 70/2022. Beiðnir samkvæmt framangreindu skulu sendar á: msm@stafrænirmöguleikar.is.

Persónuvernd annast eftirlit með framkvæmd laga um vernd persónuupplýsinga og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Sérhver skráður einstaklingur eða fulltrúi hans hefur rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd ef hann telur að vinnsla persónuupplýsinga um hann brjóti í bága við lög. Persónuvernd úrskurðar um hvort brot hafi átt sér stað. Frekari upplýsingar um Persónuvernd er að finna á vef stofnunarinnar, personuvernd.is.

7. Upplýsingaöryggi, hýsing og geymslutími gagna

Til að tryggja öryggi persónuupplýsinga höfum við innleitt skipulagslegar og tæknilegar ráðstafanir eins og:

  • Aðgangsstýringar, þannig að einungis þeir sem þurfa persónuupplýsingar starfa sinna vegna hafi aðgang að þeim.
  • Almennar tölvuvarnir, eins og vírusvarnir og eldveggir, sem eru uppfærðar reglulega.

Yoga Húsið er hýst hjá Amazon Web Services (AWS) á Írlandi, sem veitir persónuupplýsingum fullnægjandi vernd í samræmi við ákvæði evrópsku persónuverndarreglugerðarinnar, GDPR, og lög um vernd persónuupplýsinga og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

Gögn og upplýsingar eru varðveitt í samræmi við lagaskyldur og ekki lengur en nauðsynlegt er, út frá tilgangi vinnslunnar. Bókhaldsgögn eru varðveitt í samræmi við ákvæði laga um bókhald nr. 145/1994.

8. Hafðu samband

Ef þú hefur einhverjar spurningar um persónuverndarstefnu okkar, vinsamlegast hafðu samband við okkur í gegnum netfangið msm@stafrænirmöguleikar.is.


Privacy Policy of Yoga Húsið

1. Introduction

The Yoga Húsið booking system is owned by Margir stafrænir möguleikar ehf., ID no. 440325-0840, located at Fögruhlíð 3, 221 Hafnarfjörður (“MSM”).

We emphasize protecting individuals’ personal data and respecting their rights. This privacy policy provides information about the personal data processed by the company as a data controller, including the purpose of the processing and how security is ensured.

All personal data processing complies with applicable laws and regulations, including the General Data Protection Regulation (EU) 2016/679 of April 27, 2016 (“GDPR”), which was implemented in Iceland through the Act on Data Protection and the Processing of Personal Data No. 90/2018.

2. What Personal Data Do We Process?

a) Users of Yoga Húsið

In most cases, we receive personal data directly from you when you book an appointment and provide details such as your name, ID number, address, and email.

b) Customers and Customer Representatives of Yoga Húsið

We receive personal data when you are registered as a customer or a customer representative upon registering a company or service with Yoga Húsið and provide details such as your name, ID number, address, and email.

c) Inquiries and Other Electronic Communications

In some cases, we receive contact details from you when you submit inquiries or engage in other electronic communications with the company.

3. Purpose of Processing

We process personal data for the following purposes:

  • To register users’ service bookings.
  • To relay user bookings to service providers.
  • To process payments through secure payment companies.

4. Cookies

We use cookies on the Yoga Húsið website that are essential for its functionality. Cookies are small text files that are often stored on your computer or other smart devices when you visit websites. With your consent, cookies are also used for web analytics, i.e. to collect and analyze information about website usage and performance.

5. With Whom Do We Share Personal Data?

We only share personal data with:

  • The service providers that users book appointments with.
  • Secure payment companies to process payments.
  • Public authorities if required by law.

When we use external professional advisors, such as IT specialists, accountants, or auditors, they may need to process personal data. Such advisory services are conducted under a written agreement or contract that ensures personal data protection.

6. Your Rights Under Data Protection Laws

According to the Act on Data Protection and the Processing of Personal Data No. 90/2018, you have the right to know what personal data we process about you and to access that information. You also have the right to object to processing or request restrictions on data processing. Under certain circumstances, you have the right to request corrections or deletions of data. Additionally, you have the right to object to the use of your email for direct marketing under the Telecommunications Act No. 70/2022. Requests regarding these rights should be sent to: msm@stafrænirmöguleikar.is.

The Icelandic Data Protection Authority oversees the enforcement of the Act on Data Protection and the Processing of Personal Data No. 90/2018. Any registered individual or their representative has the right to file a complaint with the authority if they believe that the processing of their personal data violates the law. The Data Protection Authority determines whether a violation has occurred. More information can be found on its website: personuvernd.is.

7. Information Security, Hosting, and Data Retention

To ensure the security of personal data, we have implemented organizational and technical measures such as:

  • Access controls, ensuring that only those who need personal data for their work have access to it.
  • General cybersecurity measures, such as antivirus protection and firewalls, which are regularly updated.

Yoga Húsið is hosted on Amazon Web Services (AWS) in Ireland, which provides adequate personal data protection in accordance with the GDPR and the Icelandic Data Protection Act No. 90/2018.

Data and information are retained in compliance with legal obligations and only for as long as necessary based on the purpose of processing. Accounting records are retained according to the provisions of the Accounting Act No. 145/1994.

8. Contact

If you have any questions about our privacy policy, please contact us at: msm@stafrænirmöguleikar.is.